Laugardagur 15.09.2007 - 09:43 - Ummæli ()

Þrettán mánaða skilorð fyrir stuld á hangikjöti

hangiket-1.jpgFertugur karlmaður var dæmdur í þrettán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela úrbeinuðu hangilæri. Atvikið varð í janúar síðastliðinu, þegar maðurinn stal lærinu úr Bónus í Hveragerði. Með þjófanaðinu braut maðuinn skilorð en hann hefur þrisvar verið dæmdur fyrir þjófnað frá árinu 2004. Það kemur fram í dómsorði Héraðsdóms Reykjaness að maðurinn hafi snúið frá fyrra líferni og að dómurinn taki tillit til þess.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is