Laugardagur 15.09.2007 - 09:18 - Ummæli ()

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri: Minn besti tími í pólitík

villi.jpgVilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir í Blaðinu í dag að nú sé hans besti tími í pólitík en borgin, einkaaðilar og hagsmunasamtök eldri borgara munu fljótlega kynna stórfellda uppbyggingu á öryggis- og þjónustuíbúðum.

Til stendur að byggja hátt á fjórða hundruð þjónustuíbúðir fyrir aldraða og Vilhjálmur segist einnig munu biðja um viðræður við fjölmenna vinnustaði og skóla og ræða hvort hagræða megi vinnutíma og kennslu þannig að hægt sé að dreifa umferð á höfuðborgarsvæðinu. Allt um þetta í Blaðinu í dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is