Sunnudagur 16.09.2007 - 11:42
- Ummæli
()
Foreldrum með veikt barn vísað úr vél Icelandair í Boston
Hjónum með hjartveikt barn á leið úr aðgerð í Boston var vísað úr flugvél Icelandair á sunnudag, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.
Foreldrarnir töldu að keyptir hefðu verið fyrir þau miðar á Saga Class á heimleiðinni, líkt og á útleiðinni, en þegar í vélina var komið reyndust þau vera með miða á almennu farrými. Einn farþegi sat á Saga Class og var óskum þeirra um að fá að sitja þar hafnað. Eftir að staðið hafði í stappi var fólkinu vísað úr vélinni með börnin, þótt faðirinn, Zoran Kostovic, sem búið hefur á Íslandi í 15 ár, hafi boðist til að víkja einn var fjölskyldu hans allri vísað úr vélinni.
—-
Sjá Fréttablaðið.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is