Tony Curtis fær listmálaraverðlaun á ArtExpo
Listamessan ArtExpo í Las Vegas mun í fyrsta skipti nú í ár veita svokölluð Lifetime Achievement-verðlaun, og fyrstur til að hljóta þau er leikarinn Tony Curtis.
Leikarinn fær verðlaunin fyrir margra ára framlag sitt til listarinnar. Frá þessu segir á vefsíðu TV2.
„Enginn er fullkominn,“ segir stjarnan Tony, sem hefur verið virkur listmálari síðan á níunda áratugnum og hlotið margskonar viðurkenningar og lof fyrir verk sín.
„Ég er enn að leika en hef í sannleika sagt miklu meiri áhuga á listmálun,“ segir Curtis. Hann fær verðlaunin afhent 29. september, en sama dag mun fyrrverandi söngkona
Jefferson Airplane heimsækja sýninguna til að rita nafn sitt á þau málverk sem hún selur á sýningunni.
Í ár mun ArtExpo opnar „nýjar dyr“ þar sem um er að ræða sýningu á listaverkum fræga fólksins og aldrei áður hafa jafn mörg listaverk stjarnanna verið samankomin á einum stað.
Meðal listmálaranna frægu eru Frank Sinatra, Jimi Hendrix, Janis Joplin, Paul McCartney, Ron Wood, John Lennon og Donna Summer, en verk þerra verða til sýnis á Mandalay Bay-hótelinu.
ArtExpo stendur frá 28. til 30. september og er reiknað með gestum hvaðanæva úr heiminum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is