Mánudagur 17.09.2007 - 14:59 - Ummæli ()

Þorpið í Flatey og Safnahúsið á Ísafirði meðal sjö merkilegustu mannvirkja Vestfjarða

safnahus.jpgUn helgina valdi dómnefnd sjö merkilegustu mannvirki Vestfjarða. Fjölmiðlar auglýstu í sumar eftir tilnefningum frá almenningi og bárust tillögur um tæplega sjötíu mannvirki. Dómnefnd tók ekki tillit til fjölda tilnefninga heldur reyndi að leggja efnislegt mat á hvert þeirra fyrir sig. Við valið var ekki síst litið til sérstöðu mannvirkisins, eins og til dæmis að sá sem heimsækir það gleymi því ekki svo glatt. Þá var litið til byggingarlistar, sögunnar og fleiri þátta eftir atvikum. Í dómnefndinni voru Árni Traustason, tæknifræðingur, Guðrún Sigurðardóttir, forstöðumaður Svæðisútvarps Vestfjarða, Hlynur Þór Magnússon, sagnfræðingur, Jenný Jensdóttir, oddviti á Drangsnesi, Jón Sigurpálsson, forstöðumaður Byggðasafns Vestfjarða, Magnús Ólafs Hansson, ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun og Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt.
flatey.jpg
Eftirtalin sjö mannvirki voru valin: Síldarverksmiðjan í Djúpavík, jarðgöngin á Arnarnesi við Ísafjarðardjúp, gamla sjúkrahúsið (Safnahúsið) á Ísafirði), Garðurinn Skrúður við Núp í
Dýrafirði, vegurinn út í Svalvoga (Kjaransbraut), mannvirki Samúels Jónssonar í Selárdal og þorpið í Flatey á Breiðafirði. Á næstu dögum verður gengið frá ítarlegri greinargerð um þau mannvirki sem valin voru og jafnframt um starf dómnefndar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is