Hertar reglur á breskum sjúkrahúsum: Hvítir sloppar harðbannaðir
Hvítu, síðu læknaslopparnir heyra brátt sögunni til á sjúkrahúsum í Bretlandi, en það mun vera liður í nýjum tillögum ríkisstjórnarinnar til að sporna við sýkingum innan sjúkrahúsanna. Þetta kemur fram á BBC.
Nýir búningar læknanna, sem verða teknir í notkun á næsta ári, verða með stuttum ermum og læknum verður bannað að vera í langermaskyrtum undir sloppunum. Þá eru skartgripir og úr á bannlista.
Heilbrigðisyfirvöld segja að ermalíningar verði auðveldlega skítugar og séu gróðrarstía fyrir bakteríur. Þá verður bannað að nota bindi í vinnunni og fleiri nýjungar verða teknar upp eins og plastsvuntur.
Nýjar reglur sjúkrahúsanna leggja meiri skyldur á herðar hjúkrunarforstjóra og deildarstjóra, en þeir þurfa í framtíðinni að gefa yfirstjórn sjúkrastofnana sinna skýrslu fjórum sinnum á ári um hvernig hreinlæti sé háttað á þeirra deildum. Þeir verða líka samkvæmt lögum að tilkynna um allar sýkingar sem koma upp.
Nýjar reglur verða settar um hvenær eigi að setja sjúklinga í einangrun og fleiri einkastofur verða teknar í notkun, en á fjölmennari stofum verða sjúklingar sem þjást af sömu sýkingu meðhöndlaðir.
„Það er löngu tímabært að taka á þessum málum,“ sagði Mike Penning, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. „Vonandi verða þessar ströngu reglur til að koma alveg í veg sjúkrahúsbakteríur sem hafa verið allt of algengar undanfarin ár.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is