Sveitarfélögin rétta úr kútnum
Tekjuafkoma sveitarfélaganna hefur batnað verulega frá árinu 2004 þegar hún hún var neikvæð um 5,8 milljarða króna. Árið 2005 var hún jákvæð um 4,4 milljarða króna og á árinu 2006 um 11 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýju yfirliti um fjármál hins opinbera frá Hagstofunni.
Þar kemur fram að á 2. ársfjórðungi 2007 hafi tekjuafgangur hins opinbera numið 9,7 milljörðum króna sem sé nokkuð óhagstæðari afkoma en á 2. ársfjórðungi 2006 er hann mældist 15,7 milljarðar króna.
Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuafgangurinn 0,7% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 6,5%. Nokkuð snörp lækkun virðist vera frá síðasta ársfjórðungi 2006 er tekjuafgangur hins opinbera mældist 2,2% af landsframleiðslu, en á fyrsta ársfjórðungi 2007 nam hann 1,6% af lands-framleiðslu eins sjá má á myndinni.
Tekjuafkoma ríkissjóðs og almannatrygginga var jákvæð um ríflega 8,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2007 og tekjuafkoma sveitarfélaganna um 1,4 milljarða króna á sama tímabili.
Vöxtur tekna hins opinbera milli ársfjórðunga frá fyrsta ársfjórðungi 2004 hefur verið um 3,4% að meðaltali á sama tíma og vöxtur útgjalda hins opinbera hefur verið um 2,8%. Meðalhækkun neysluverðs milli ársfjórðunga á þessu tímabili hefur verið ríflega 1,2%.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is