Þriðjudagur 18.09.2007 - 09:47 - Ummæli ()

Tvítyngi verndar heilann

blog175dolitter.jpgÞað getur haldið heilanum skörpum lengur að vera talandi á tvö tungumál, samkvæmt nýrri rannsókn. Rannsakendur frá York háskóla í Kanada rannsökuðu 104 einstaklinga frá 30-88 ára.

Þeir komust að því að þeir sem höfðu góð tök á tveimur tungumálum en ekki aðeins einu voru skarpari til höfuðsins. Í tímaritinu Psychology and Ageing segja rannsakendurnir að tvítyngi hafi e.t.v. þau áhrif að koma í veg fyrir hrörnun hugarstarfs hjá eldra fólki. Fyrri rannsóknir hafa gefið til kynna að það getur gagnast gegn hrörnun að leika á hljóðfæri, dansa eða lesa reglulega. Þeir sem það geri fái síður minnissjúkdóma en aðrir. Það hjálpi líka að gera krossgátur, tefla eða spila borðspil.

Dr Ellen Bialystok og félagar hennar í York-háskóla lögðu mat á færni hugarstarfs hjá þeim sem tóku þátt í rannsókninni og lögðu fyrir fólkið viðurkennd próf þar sem orðaforði, rökleiðsluhæfileikar og viðbragðstími voru metnir. Helmingur þátttakenda var Kanadamenn, sem töluðu eingöngu ensku, hinn helmingurinn Tamílar sem töluðu jafnt ensku og tamil. Bakgrunnur fólksins var að öðru leyti svipaður hvað varðar menntun og stéttarstöðu.

Í ljós kom að þeir sem voru talandi á tvö tungumál höfðu skemmri viðbragðstíma en hinir sem aðeins voru mæltir á ensku og átti það jafnt við um alla aldurshópa. Einnig kom í ljós að hinir tvítyngdu voru síður líklegir til að glíma við andlega hrörnun með aldrinum. „Þeir tvítyngdu sýndu betra viðbragð í öllum aldurshópum og þeim fór hægar aftur með aldrinum,“ er haft eftir rannsakendunum á vef BBC.

Alzheimer-félag Bretlands fagnar rannsókninni. „Það að fólk geti bætt ákveðna þætti hugarstarfsins á efri árum með því að tileinka sér annað tungumál snemma á ævinni er mjög athyglisvert,“ segir Clive Ballard, rannsóknarstjóri. „Það er hugsanlegt að það að læra annað tungumál í bernsku hafi áhrif á þróun taugakerfisins. En það þarf að fara varlega í að túlka þessar niðurstöður þar sem verið er að bera saman hópa einstaklinga af ólíku þjóðerni, sem hlotið hafa menntun í ólíku menntakerfi. Það er líka vel þekkt að menntun almennt getur komið hugarstarfi til góða síðar á ævinni.“

—-

Sjá BBC.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is