Fimmtudagur 20.09.2007 - 15:22 - Ummæli ()

Sofnaði með logandi sígarettu: Dæmdur fyrir manndráp á konu sinni

sigaretta.jpgSextugur maður í Stavanger hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp, en konan hans lést í eldsvoða sem varð eftir að maðurinn sofnaði fyrir framan sjónvarpið með logandi sígarettu í hendinni. Þetta kemur fram á norska fréttavefnum VGnett í dag.

Það var kvöldið 21. febrúar í fyrra sem maðurinn og eiginkona hans settust í sitt hvorn stólinn fyrir framan sjónvarpið. Þau neyttu bæði áfengis og reyktu en í dómnum kemur fram að klukkan tvö um nóttina hafi kviknað í svo ekki varð við neitt ráðið.
Logandi sígaretta mannsins mun hafa fallið á gólfið, á dagblöð sem lágu þar, og stuttu síðar var eldurinn laus.

Maðurinn vaknaði við ýlið í reykskynjaranum, en þá var reykurinn svo þéttur að hann fann ekki eiginkonu sína. Þrátt fyrir að reykskynjarinn væri beintengdur við sökkviliðsstöðina náðu reykkafarar ekki að bjarga konunni. Þeir fundu hana látna í stólnum þar sem hún hafði sofnað fyrr um kvöldið.

Rétturinn í Stavanger dæmdi manninn, sem hefur hreint sakarvottorð, í 120 daga skilorðsbundið fanglesli.

„Við erum að íhuga hvort við áfrýjum dómnum,“ segir Vidar Strømme, lögmaður mannsins. Skjólstæðingur hans vill ekki viðurkenna að það sé endilega sígarettan hans sem olli eldsvoðanum, en rétturinn í Stavanger er ekki í nokkrum vafa um sekt mannsins og telur hann hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi.

Dómurinn verður þó allur skilorðsbundinn vegna heilsufars mannsins og ömurlegra afleiðinga brunans.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is