Dagskrárstjóra Skjás eins sagt upp störfum
Björn Þórir Sigurðsson dagskrárstjóri á Skjá einum hefur verið leystur frá störfum. Í bréfi sem hann sendi samstarfsfólki fyrir stuttri stundu segir hann að þetta hafi verið að ósk Brynjólfs Bjarnasonar forstjóra Símans. Björn var nýkominn heim frá Los Angeles úr 10 daga innkaupaferð. Ekki er vitað á þessari stundu hver tekur við af Birni Þór. Hann segist í bréfi sínu verða samstarfsfólki innan handar á næstunni. Aðstoðardagskrárstjóri Skjás eins er Kristjana Brynjólfsdóttir, dóttir Brynjólfs Bjarnasonar.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins, sagðist á fundi með starfsfólki í dag ekki geta gefið upp ástæðu uppsagnarinnar. Björn Þórir yrði sjálfur að gera það. Hann var ekki á fundinum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is