Föstudagur 21.09.2007 - 08:24 - Ummæli ()

DV: Einn höfuðpauranna 27 ára Kópavogsbúi

vardsjip.jpgDV segir frá þvi í dag, að einn höfuðpaur fíkniefnasmyglaranna á Fáskrúðsfirði sé 27 ára karlmaður sem búi í leiguíbúð á Kársnesbraut í Kópavogi en hafi þó ekki dvalið þar lengi. DV segir að hann sé tengdur svokallaðri Vogaklíku sem talsvert hafi verið í umfjöllun fjölmiðla. Maðurinn sé þekktur úr undirheimunum fyrir fíkniefnaviðskipti og handrukkanir. Hann hafi verið einn þeirra sem gekk í skrokk á þekktum tónlistarmanni á sínum tíma.

Samkvæmt DV er ekki óhugsandi að fíkniefnum hafi áður verið smyglað til Íslands með sama hætti og reynt var í gær. Eins og Eyjan sagði frá í gær lá skúta sem enginn hirti um í höfn í Fáskrúðsfirði frá því haustið 2005 og fram á vor 2006.

Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði m.a. í viðtali við Ríkisútvapið í morgun að danska varðskipið Triton hefði veitt aðstoð í málinu með því að fylgjast með för skútunnar á Atlantshafi.

Sjá á dv.is


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is