Minnihluti fjárlaganefndar: Nefndin sinnir ekki eftirlitshlutverki sínu
Minnihluti fjárlaganefndar telur að fjárlaganefnd hafi ekki sinnt til hlítar rannsóknar- og eftirlitshlutverki sínu í Grímseyjarferjumálinu og vill fá lögfræðiálit til að skera úr ágreiningi fjármálaráðhera og ríkisendurskoðanda um hvort fjárreiðulög hafi verið brotin.
Fjárlaganefnd hefur lokið umfjöllun um Grímseyjarferjumálið og felldi í gær tillögur minnihlutans um að kalla fyrir nefndina forsvarsmenn Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði, sem vinnur að endurbótum á skipinu, fulltrúa ráðgjafafyrirtækisins Navis Fengur sem hefur haft eftirlit með framkvæmdunum. Einnig að nefndin fái lögfræðiálit og kalli eftir viðhorfum Ríkisendurskoðunar til staðhæfinga fjármálaráðherra um að sambærilegar heimildir til að ráðstafa opinberu fé hafi verið veittar í öðru máli.
Í sameiginlegri bókun stjórnarandstöðuþingmannanna Jóns Bjarnasonar, Guðjóns A. Kristjánssonar og Bjarna Harðarsonar leggja þeir til að nefndin fresti fullnaðarafgreiðslu og taki afstöðu til ágreiningsmála ráðuneytis og ríkisendurskoðunar vegna Grímseyjarferjumálsins enda lúti þau að grundvallaratriðum í stjórnskipun landsins og „mögulegum rétti framkvæmdavaldsins til að taka í eigin hendur það fjárveitingarvald sem lög kveða á um að Alþingi fari með.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is