Laugardagur 22.09.2007 - 11:24 - Ummæli ()

Fáskrúðsfjarðarmálið: Efnin í skútunni um 700 milljóna króna virði á götunni

img_5918.JPGLíklega væri endanlegt söluverð þeirra efna sem fundust í skútunni í Fáskrúðsfjarðarhöfn á fimmtudaginn ekki minna en 700 milljónir króna. Ólíklegt er að innkaupsverðið hafi verið meira en 12 milljónir króna erlendis.

Búa mætti til 140.000 e-töflur úr þeim 14 kg af e-dufti, sem lögregla fann í skútunni á fimmtudagsmorgun, að því er segir í Morgunblaðinu í dag. Í frétt í Morgunblaðinu í dag kemur fram að úr einu grammi af duftinu megi búa til 10 töflur. Jafnframt að mesta magn sem náðst hafi í landinu af e-töflum hingað til séu 67.000 töflur í fórum manns sem hingað kom á leið vestur um haf árið 2001. Talið var að töflurnar væru ekki ætlaðar fyrir íslenskan markað.
Miðað við götuverð á e-töflum í ágústmánuði þýðir það að duftið er 300 milljóna króna virði.

Að auki voru í skútunni 1800 e-töflur sem eru um 3,8 milljóna virði, og um 45 kg af amfetamíni, sem er um 193 milljóna virði. Allar líkur eru hins vegar á að amfetamínið sé það sterkt að það yrði þynnt út um amk helming fyrir sölu á markaði og má því gera ráð fyrir að það sé um 385 milljóna króna virði á markaði. Samkvæmt heimildum Eyjunnar er varlega talið að áætla að efnið yrði aðeins þynnt út til helminga mun líklegra sé að þyngd þess yrði allt að því þrefölduð með íblöndunarefnum áður en það verði sett í sölu. Miðað við það gæti verðmæti amfetamínsins eins verið um 800 milljónir og söluverð farmsins í heild um 1,1 milljarður króna.

Þar með er orðið varlegt að áætla að heildarverðmæti farmsins sem kom til Fáskrúðsfjarðar á fimmtudaginn sé um 700 milljónir króna og er þá miðað við upplýsingar á heimasíðu SÁÁ um verð á neytendaskömmtum og gengið út frá því að svo mikið magn hafi ekki áhrif á götuverðið til lækkunar.

Þótt söluverð efnanna hér á landi nemi svo ótrúlegum tölum er talið að innkaupsverðið, líklega í viðskiptum við amfetamínverksmiðju í Austur-Evrópu sé mun lægra, líklega í kringum 10-12 milljónir króna. Heimildarmaður fréttastofu Sjónvarps nefndi í gær töluna sex milljónr sem innkaupsverð.

Springur refsiramminn?
Íslenskir dómstólar hafa tekið mjög hart á e-töflusmygli. Fyrir smygl á um 4-5000 töflum hafa menn verið dæmdir í allt að sjö ára fangelsi í Hæstarétti. Refsiramminn í fíkniefnalagabrotum er 12 ára fangelsi og miðað við fyrri mál hlýtur að reyna verulega á þann ramma þegar Fáskrúðsfjarðarmálið kemur til kasta dómstóla.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is