Loftslagsmál: Lykilfundur heimsleiðtoga í New York í dag
Rúmlega 80 þjóðarleiðtogar koma saman á sérstökum fundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem Ban-ki Moon, aðalritari SÞ, hefur boðað til í New York í dag. Um 150 ríki taka þátt í fundinum. Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu og Rajendra Pachauri aðalsérfræðingur S.þ. í loftslagsmálum flytja opnunarávörp fundarins.
Fyrir hönd íslands taka Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra þátt í umræðum á fundinum um aðgerðir til að draga úr áhrifum loftlagsbreytinga.
Schwarzenegger segir í ávarpi sínu að Kalifornía ætli að „færa Bandaríkin af efasemda- umræðustigi til athafna.“ Í ávarpi Pachauris segir að nú séu fyrir hendi mun betri sannanir um áhrif mannkyns á loftslagið og því sé kominn tími til að hefjast handa.
Meðal annarra þjóðarleiðtoga sem taka til máls eru Angela Merkel kanslari Þýskalands, Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna.
George Bush Bandaríkjaforseti verður ekki viðstaddur fundinn en verður meðal gesta Ban-ki Moon í kvöldverðarboði með fulltrúum lykilþjóða að honum loknum.
Markmið aðalritarans er að efla alþjóðlega pólitíska samstöðu um sameiginlegar aðgerðir nú þegar samningaviðræður eru fyrir dyrum um stórauknar takmarkanir á útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
Bush hefur boðað forystumenn þeirra þjóða sem ábyrgar eru fyrir losun um 90% gróðarhúsaloftegunda til fundar í Washington síðar í vikunni. Þar ætlar að hann að kynna eigin hugmyndafræði í loftslagsmálum, sem felst í því að einstökum ríkjum verði í sjálfsvald sett hvernig þau taka á losunarmálunum, en ekki bundið í alþjóðasamningum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is