Fimmtudagur 27.09.2007 - 19:13 - Ummæli ()

Hjúkrunarfræðingar harma að Guðlaugur Þór feti ekki í fótspor Björns

landspitali.jpgFélagsráðsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga krefst þess að öllum hjúkrunarfræðingum á stofnunum ríkisins verði greidd 30.000 króna álagsgreiðsla á mánuði þar til núverandi kjarasamningur rennur út í lok apríl á næsta ári.

Í ályktun fundarins, sem haldinn var í dag er harmað er að heilbrigðisráðherra beiti sér ekki fyrir sérstökum álagsgreiðslum til hjjúkrunarfræðinga með sama hætti og dómsmálaráðherra hefur gert með 30.000 króna álagsgreiðslum á mánuði til lögreglumanna.

Í fréttum Sjónvarpsins í kvöld sagði Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, í viðstali við Sjónvarpið að það vantaði nú 90 hjúkrunarfræðinga á Landspítalann og alls um 600 hjúkrunarfræðinga til starfa í landinu. Rannsóknir sýni að starfsmenn stofnana heilbrigðisráðuneytisins hafi undanfarin ár dregist aftur úr öðrum opinberum starfsmönnum í launum.

—-

Sjá ályktun hjúkrunarfræðinga.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is