Föstudagur 28.09.2007 - 18:41 - Ummæli ()

Hatton-Rockall: Jákvæður Reykjavíkurfundur og vaxandi bjartsýni

300px-rockall_eez.jpgViðræður fjögurra ríkja í Reykjavík um hafnsbotnsréttindi á Hatton-Rockall svæðinu færðu menn nær niðurstöðu, að því er Tómas Heiðar, þjóðréttafræðingur í utanríkisráðuneytinu segir í samtali við Reuters fréttastofuna.  Næsti fundur í deilunni er ráðgerður í Kaupmannahöfn í nóvember.

Embættismenn frá Íslandi, Danmörku, Írlandi og Bretlandi sátu á tveggja daga fundum í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík í gær og fyrradag. „Þetta var jákvæður fundur og það er vaxandi bjartsýni á að niðurstaða fáist sem öllum aðilum þykir viðunandi,“ segir Tómas Heiðar. Enn er þó langt í land. „Við erum enn að ræða um hvernig við nálgumst lausnirnar fremur en lausnirnar sjálfar,“ sagði Tómas og bætir við að mikið sé í húfi. „Ef við náum ekki samkomulagi verða þessar náttúruauðlindir ekki nýttar og víðtækar og kostnaðarsamar rannsóknir verða til einskis.“

Talið er að mikið af olíu og gasi megi finna undir hafsbotninu í grennd við klettinn Rockall sem er utan íslensku efnahagslögsögunnar en í jaðri efnahagslögsögu Bretlands.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is