Lítil stúlka sem sást nauðgað á myndbandi finnst heil á húfi
Lítil telpa, sem sást á myndbandi þola kynferðislegar mysþyrmingar, fannst heil á húfi í gærkvöldi. Hún er vel á sig komin og hjá fjölskyldu sinni, að sögn lögreglu í Nye sýslu, dreifbýli í nágrenni Las Vegas í Nevadaríki. Lögregluyfirvöld lýstu ákaft eftir stúlkunni á myndbandinu á bandarískum sjónvarpsstöðum í gær og það varð til þess að hún fannst.
Talið er að myndbandið af glæpnum hafi verið gert í Las Vegas einhvern tíma á tímabilinu janúar 2005 til maí 2007, þegar súlkan var fjögurra eða fimm ára gömul. Lögreglan hvetur 37 ára karlmann, Chester Arthur Stiles, sem er grunaður um nauðgunina, til að gefa sig fram.
David Boruchowitz, lögreglufulltrúi í Nye sýslu sem vann að rannsókn málsins, segir að „einfaldast sé að útskýra það sem sést á myndbandinu með því að ímynda sér það allra versta sem geti komið fyrir litla stúlku í höndunum á fullorðnum karlmanni. Það gerðist, og meira til.“
Stiles er einnig eftirlýstur í öðru kynferðisbrotamáli gegn barni í Nevada.
Myndbandið af litlu stúlkunni hafði verið tekið ofaní annað myndband á spólunni. Það myndband var af annarri, 11 ára gamalli stúlku og var tekið í gegnum glugga á heimili hennar. Ekki var ráðist á þá stúlku, en lögreglu tókst að tengja þetta myndband við útkall vegna gluggagægis við heimili stúlkunar sem nú er 13 ára.
Maður að nafni Darren Tuck afhenti myndbandið lögreglunni í Nye sýslu 8. september s.l. eftir að annar maður sagðist hafa séð brot af þvi hjá Tuck.
Tuck var handtekin fyrir að stuðla að og hafa í fórum sínum barnaklám og bíður nú dóms eftir að hafa verið látinn laus gegn tryggingu. Hans gæti beðið lífstíðardómur. Tuck kveðst hafa fundið spóluna á víðavangi fyrir fimm mánuðum síðan í eyðimörkinni utan við Pharump, sem er rúmlega 20 þúsund manna bær í Nye sýslu. Lögreglan telur ekki að hann hafi gert myndbandið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is