Myrti eiginmann sinn með dauðakossi
Hin kínverska Xia Xingfeng og eiginmaður hennar gerðu með sér samkomulag þegar þau giftu sig um að héldi annað þeirra fram hjá kostaði það „syndaselinn“ lífið. Þegar Xia Xingfeng uppgötvaði
að maður hennar hafði verið ótrúr var ekki um margt að ræða fyrir hana.
Hún drap mann sinn á útspekúleraðan hátt án þess að hann yrði nokkurntíma tortrygginn. Hú kyssti hann lengi og kom litlu hylki með rottueitri fyrir í munninum á honum meðan á kossinum stóð.
Þetta gerðist í Henan-héraði í Kína samkvæmt fréttum á Sky News, en BT greinir einnig frá þessu í dag. Maðurinn lést skömmu eftir að hann hafði kyngt hylkinu.
Þrátt fyrir samkomulag hjónanna á brúðkaupsdaginn reyndist það einskis virði í réttarsalnum þar sem konan var dæmd til dauða.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is