Tölfræðin leiðrétt: Hjónabönd halda betur nú en nokkru sinni – skilnuðum fækkar
Mýtan um að farsæl hjónabönd séu sjaldgæf og skilnuðum fjölgi sífellt hefur verið lífsseig bæði í Evrópu og Bandaríkjunum þar hver ný kynslóð telur hjónabönd sinnar kynslóðar standa valtari fótum en foreldranna. Þetta kemur fram í the New York Times.
Í síðustu viku fékk þessi mýta svo byr undir báða vængi þegar dagblað í Bandaríkjunum varaði lesendur sína við að „safna silfurbrúðkaupskortum“, það væri tilgangslaust því fólk sem giftist seint á sjöunda áratugnum ætti enga möguleika í silfurbrúðkaupið. Og annað dagblað bætti um betur og birti háskalegar tölur um skilnaðartíðini hjóna sem höfðu gift sig á árunum 1975-1994.
Þessi saga um skilnaði er ótrúlega lífsseig, ekki síst af því hún kolröng. Í raun og veru hefur skilnuðum fækkað jafnt og þétt á síðasta aldarfjórðungi og skilnaðartíðni hefur ekki verið lægri síðan 1970.
Þó giftingum fari jafnframt fækkandi, virðast hjónabönd sem þó er stofnaði til, standa traustum fótum.
Til dæmis eru pör, sem giftu sig á tíunda áratugnum, líklegri til að halda upp á tíu ára brúðkaupsafmæli en pör sem giftu sig á áttunda áratugnum, sem aftur voru líklegri til að halda út tíu árin en þau sem giftu sig á sjöunda áratugnum.
En hvað veldur því þá að kannanir sýna tölur sem eru beinlínis rangar?
Til að skilja það verður að grafa dýpra í annars frekar flókna tölfræði.
Manntalsskrifstofan í Bandaríkjunum tilkynnti nýlega að rúmlega helmingur hjónabanda sem stofnað var til á árunum 1975-1979 hefði ekki náð að halda upp á 25 ára brúðkaupsafmæli.
Hér kemur hins vegar ruglingurinn. Tölur manntalsskrifstofunnar voru niðurstöður könnunar sem gerð var á miðju ári 2004. Á þeim tíma voru ekki liðin 25 ár frá giftingu eins af hverjum tíu pörum sem voru skoðuð. Ef par hafði til dæmis gift sig seint á árinu 1979 var útilokað að það hefði náð að halda upp á 25 ára brúðkaupsafmælið þegar könnunin var gerð á miðju ári 2004.
Ef manntalsskrifstofan hefði gert könnunina sex mánuðum síðar hefðu niðurstöður orðið allt aðrar. Þá hefði útkoman verið sú að meirihluti hjóna sem giftu sig seint árið 1979 voru á lukkulegri siglingu inn í 26. hjónabandsárið.
Þegar tölurnar eru leiðréttar kemur einmitt í ljós að meirihluti þerra sem gengu í hjónaband á árunum 1975-1979, eða 53%, náðu að halda upp á silfurbrúðkaupsafmæli.
Og af hverju er þá haldið svona fast í röngu mýtuna? Fréttir um fjölskyldutölfræði eru um margt líkar tölfræði um viðskipti og efnahag. Það fer svo eftir því hverjir stjórna könnununum og hverjir túlka þær hvað kemur út úr þeim. Í fjölskyldupólitík kemur það sér vel fyrir íhaldssama að skilnuðum fari fjölgandi svo þeir geti boðað íhaldssamari fjölskyldustefnu meðan frjálslyndir gera minna úr hjónaböndum eða hefðbundnu fjölskyldumunstri. Fjölskyldutölfræði verður þó að byggja á staðreyndum og staðreyndin er sú að skilnuðum fer fækkandi og hjónabönd nútímans eru sterkari en þau hafa verið lengi.
Þannig að: Ef fólk rekst á skemmtileg silfurbrúðkaupskort í innkaupaferðinni er alveg óhætt að slá til og kaupa nokkur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

