George Michael vill draga úr maríjúanareykingum sínum
George Michael er að reyna að draga úr maríjúanareykingum, að því er hann greindi frá í viðtali við BBC í dag. „Ég er stöðugt að reyna að draga úr maríúanalreykingunum. Ég vil reykna minna og að vissu leyti er þetta vandamál,“ sagði hann í útvarpsþættinum Desert Island Discs á BBC Radio 4.
„Er þetta vandamál í lífi mínu? Kemur það í veg fyrir að ég geti lifað lífinu? Það held ég ekki,“ sagði George Michael. „Ég er hamingjusamur maður og hef efni á maríjúana svo að það er ekki vandamálið.
George Michael, sem hefur selt 85 milljón plötur á ferli sínum hefur áður játað að vera háður læknalyfjum og hefur sagt að maríjúana sé ekki nærri því eins skaðlegt og áfengi. Hann gekk fram af mörgum löndum sínum í fyrra þegar hann reykti jónú í sjónvarpsviðtali og sagði: „Þetta heldur mér heilbrigðum og hamingjusömum.“ Í júní á þessu ári var söngvarinn sviptur ökuréttindum í 2 ár og dæmdur til að sinna 100 klukkustunda samfélagsverkefnum eftir að hafa játað á sig akstur undir áhrifum eiturlyfja. Þá hafði lögregla komið að honum rænulitlum undir stýri Mercedes Benz bílsins hans við gatnamót í London og sögðu saksóknarar að um væri að kenna blöndu löglegra og ólöglegra eiturlyfja sem hann hafði neytt.
Í viðtalinu í morgun sagðist George Michael búinn að afplána 50 klukkustundir af samfélagsþjónustunni sem felst í því að vinna með fólki sem stríðir við geðsjúkdóma og eiturlyfjafíkn. „Ég hef líka þurft að skúra mjög óhrein herbergi og búa til kjúklinga-fajitas fyrir heimilislausa. Það bragðaðist vel, er mér sagt.“
—-
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is