Föstudagur 05.10.2007 - 00:48 - Ummæli ()

Björn Bjarnason: Sami skortur á upplýsingum í stjórn OR og hjá fyrri meirihluta?

„Er það hluti stjórnarhátta innan Orkuveitu Reykjavíkur, að stjórnarmenn í minnihluta eigi erfitt með að fá upplýsingar um, hvað er að gerast innan fyrirtækisins og finnst sér stillt upp við vegg við töku ákvarðana?“ spyr Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á bloggsíðu sinni.

Í dag hefur komið fram í fjölmiðlum að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, eigi undir högg að sækja innan Sjálfstæðisflokksins þar sem fjölmargir borgarfulltrúar flokksins gagnrýni samruna Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy en borgarstjóri á m.a. sæti í fyrirtækinu.

„Þannig var þetta þann stutta tíma, sem ég sat í stjórn fyrirtækisins,“ segir Björn Bjarnason, fyrrverandi oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. „Ég taldi víst, að þetta mundi breytast með nýjum herrum. Þá töldum við einnig eðlilegt, að málefni OR væru rædd í borgarráði og borgarstjórn. Skyldi andstaða meirihluta stjórnar við það vera hin sama og hún var þá?“

—-

Sjá hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is