Laugardagur 06.10.2007 - 11:48 - Ummæli ()

Pakistan: Musharraf sagður hafa sigrað í forsetakosningunum

trdv243276.jpg

Perves Musharraf, var endurkjörinn öðru sinni í forsetakosningunum í Pakistan, að því er ríkisrekin sjónvarpsstöð greindi frá.

Ekki er um staðfestar tölur að ræða og hefur hæstiréttur landsins hefur úrskurðað að ekki eigi að lýsa neinn opinberlega sigurvegara kosninganna fyrr en allar lagadeilur um framkvæmd kosninganna hafa verið til lykta leiddar.

Amk 11 daga munu því líða þar til kemur í ljós hvort Musharraf verður áfram forseti og jafnframt æðsti yfirmaður hersins. Deilur um það að hvort hann gæti gegnt hvoru tveggja hlutverkinu samtímis urðu til þess að flokkur Benazir Bhutto var einn þeirra stjórnarandstöðuflokka sem sniðgengu kosningarnar en stjórnarandstæðingar vildu að Musharraf segði af sér embætti yfirmanns hersins. 185 þingmenn stjórnarandstöðu sögðu af sér til að mótmæla tvöföldu hlutverki Musharrafs, sem nýtur stuðnings Bandaríkjastjórnar.

—-

Sjá CNN.

 

Mynd: Nordic Photo/AFP

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is