Miðvikudagur 10.10.2007 - 11:58
- Ummæli
()
Aðþrengdur eiginmaður
Leikarinn Ricardo Chavira, sem leikur Carlos Solis í Desperate Housewives, gekk í það heilaga í september. Hann gekk að eiga barnsmóður sína og unnustu til margra ára, Marcea Dietzel, í Texas þann 22. september og var athöfnin lítil og persónuleg.
Fjölmiðlafulltrúi Desperate Housewives sagði athöfnina hafa verið það afslappaða að í stað smókings og brúðarkjóls hafi hjónakornin klæðst náttfötum.
Engin veisla var haldin heldur héldu hin nýgiftu hjón á fótboltaleik og hvöttu fjögurra ára gamlan son sinn, Tomas, til dáða. Tomas var einmitt svaramaður föður síns sem og hringaberi í athöfninni.
—
Meira hér.
Myndir: NordicPhoto/GettyImages
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is