Fimmtudagur 11.10.2007 - 11:32 - Ummæli ()

2007 ár straumhvarfa í erfðafræði: Kári einn af þeim tíu áhrifamestu

51009437.jpgKári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er einn af tíu áhrifamestu vísindamönnum heims á líftæknisviði, samkvæmt grein í tímamaritinu Newsweek. Þar er ítarleg umfjöllun um mikil þáttaskil sem orðið hafi í erfðavísindum á árinu og er talað um árið 2007 sem kraftaverkaárið – árið þegar fjölmargar uppgötvanir hafa verið gerðar sem eiga eftir að umbylta skilningi manna á erfðum. 2007 er líkt við 1905, árið sem afstæðiskenning Einsteins og fleiri tímamótauppgötvanir voru gerðar.

„Ísland er land sagnamannanna,“ segir Kári í viðtali við Newsweek“. Það er einstaklega spennandi að fá ekki aðeins að taka þátt í því að uppgötva gen tengd sjúkdómum heldur líka breytileika genamengisins, sem segir sögu mannsins. Ég elska það að fá að segja þá sögu.“

Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Kára í tilefni af greininni og nafnbótinni: „Ég hef ekki enn séð greinina og veit því ekki einu sinni hverjir hinir níu eru, en ef þetta er góður félagsskapur þá er það allt í lagi. Þegar maður er skammaður er maður tilneyddur að segja að maður eigi það ekki skilið, og það er svipuð tilfinning þegar maður fær hrós.“

Umfjöllun Newsweek ber heitið „The ten hottest nerds“.

—-

Sjá umfjöllun Newsweek.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is