Viðskipti Fimmtudagur 11.10.2007 - 09:57 - Ummæli ()

Nýherji kaupir TM Software

Nýjerji hefur samið um kaup á 77% af hlutafé í Nýherji hf. hefur samið um kaup á 77% af hlutafé í upplýsingatæknifyrirtækinu TM Software hf., af Straumi hf. FL Group hf. og Tryggingamiðstöðinni hf.  Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar á sviði rekstrarþjónustu, hýsingar og þróunar sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. Straumur hf. annaðist milligöngu um kaupin og  eru þau háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem og samþykki samkeppnisyfirvalda.

TM Software er móðurfélag fimm félaga:  Skyggnis, Origo, Vigor, eMR og ITP. „TM Software er í forystu hérlendis á sviði hýsingar og sértækra hugbúnaðarlausna og eru mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins á meðal viðskiptavina fyrirtækisins,“ segir í fréttatilkynningu. Tekjur TM Software eru áætlaðar um 2.500 mkr á árinu og er fjöldi starfsmanna um 280. „Kaup Nýherja á TM Software er mikilvægur áfangi í því að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar sem lausna- og þjónustufyrirtækis og verður yfir helmingur tekna sameinaðs félags af hugbúnaðar- og þjónustustarfsemi. Velta samstæðunnar eftir kaupin á TM Software verður um 13 milljarðar króna og starfsmannafjöldi um 750.“

Kaupin miðast við að heildarverð hlutabréfa í TM Software sé 1.700 mkr og er greiðsla á 77% hlutafjár í TM Software því ríflega 1.300 mkr. Nýherji ráðgerir að gefa út nýtt hlutafé að nafnverði 55 mkr til þess að fjármagna kaupin að hluta. Þetta hlutafé verður boðið til kaups á genginu 22 og eru því 1.210 milljónir króna fjármagnaðar með sölu hlutafjár. Greiðsla fyrir þau 77% sem keypt hafa verið er þannig að 32,35% eru greidd með hlutabréfum í Nýherja en 67,65% í peningum. Áformað er að verja allt að 25 milljónum að nafnverði hlutafjár til að greiða hluthöfum í TM Software en 30 milljónir verða boðnar núverandi hluthöfum í Nýherja. Eftirstöðvar kaupverðsins  verða fjármagnaðar með lánsfé og úr sjóðum félagsins. Nýherji mun bjóða öðrum hluthöfum í TM Software að selja sinn hlut  á sömu kjörum og þeir sem þegar hafa samið um sölu sinna hluta.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is