Mánudagur 15.10.2007 - 18:12 - Ummæli ()

Martin Eyjólfsson sviðsstjóri viðskipta í utanríkisráðuneyti

martin-eyjolfsson.JPGMartin Eyjólfsson hefur verið ráðinn í starf sviðsstjóra viðskiptasviðs utanríkisráðuneytisins. Martin tekur við starfinu af Berglindi Ásgeirsdóttur sem í september varð ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.

„Martin hóf störf í utanríkisþjónustunni 1996 og hefur víðtæka reynslu af rekstri EES-samningsins og gerð viðskiptasamninga. Hann starfaði fyrst í ráðuneytinu á viðskiptaskrifstofu frá 1996 þar til hann fluttist til starfa við sendiráð Íslands í Brussel 1998. Hann sneri aftur í ráðuneytið árið 2002 og fékkst m.a. við gerð loftferðasamninga og fríverslunarsamninga þar til hann varð forstöðumaður viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins árið 2003. Í ársbyrjun 2007 tók hann við stöðu skrifstofustjóra Evrópuskrifstofu. Martin tók þátt í samningaviðræðum við ESB um stækkun EES 2004 og 2007 og hefur flutt dómsmál fyrir dómstól Evrópubandalaganna og EFTA-dómstólnum. Hann sinnir stundakennslu í Evrópurétti og alþjóðaviðskiptum við Háskólann í Reykjavík,“ segir í frétt frá utanríkisráðuneytinu.

Martin er fæddur 1971 og lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1997. Hann spilaði lengi knattspyrnu með meistaraflokki ÍBV.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is