Áfengisvandinn eykst sífellt í Englandi
Fjöldi einstaklinga sem leitar sér hjálpar vegna áfengisvanda í Englandi hefur aukist umtalsvert á síðustu árum, að sögn heilbrigðisyfivalda.
Rannsóknir sýna að í öllum sveitarfélögum Englands hefur sjúklingum fjölgað sem lagðir eru inn á sjúkrahús vegna áfengisneyslu og sjúkdóma tengdum henni. Þar má nefna slys sem hægt er að rekja beint til áfengisneyslu, svo og sjúkdóma og áfengiseitranir. Þetta kemur fram á vefsíðu United Press International.
Tölur sýna dramatíska aukningu vandans, því árin 2001-2 voru karlmenn sem lagðir voru inn á sjúkrahús vegna áfengisvanda 714 af hverjum 100.000, en hafði fjölgað í 909 árin 2005-6.
Fjöldi kvenna jókst úr 396 í 510 af hverjum 100.000 á sama tíma.
Forstjóri Heilsugæslunnar, Mark Bellis, segir í viðtali við Observer að þessar tölur sýni hroðalegar afleiðingar „fylleríis“-menningar þjóðarinnar.
„Þessi aukna drykkja allstaðar í Englandi hefur hræðilegar afleiðingar, bæði fyrir einstaklingana sjálfa sem fá ekki lausn á vandanum og fyrir heilbrigðisstofnanir og lögreglu sem ná ekki að bregðast við auknu álagi. Það er full ástæða til að efna til þjóðarátaks í þessum málum,“ segir Bellis.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is