Þriðjudagur 16.10.2007 - 15:43 - Ummæli ()

Bush hittir Dalai Lama – Kínverjar reiðir

lama-i-us.jpgGeorge W. Bush Bandaríkjaforseti mun hitta Dalai Lama í dag, en á morgun verður sérstök hátíðarsamkoma þar sem hinn andlegi leiðtogi mun hljóta gullheiðursmerki Bandaríkjaþings.

Varnaðarorð hafa borist frá Kína, sem segja þetta ills viti fyrir samskipti ríkjanna.

Dalai Lama er útlægur leiðtogi búddamunka í Tíbet, en á sama tíma lítur heimurinn til hans sem móralsks leiðtoga.
Dalai Lama var rakkaður niður í Peking þegar hann fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1989 og því haldið fram
að leiðtoginn ógnaði fullveldi Kína með því að fara fram á sjálfstætt Tíbet.

Erindreki Dalai Lama, Lodi Gyari, segir að mynd af Bush og Dalai Lama hlið við hlið við athöfnina muni senda þau skilaboð til umheimsins að „fólki standi ekki á sama um Tíbet“.

„Ég efast ekki um að þetta muni verða hvatning og von fyrir íbúa í Tíbet. Jafnframt eru þetta skilaboð til Kína um að Dalai Lama er ekki úr sögunni.“

Sjá frétt á vefsíðu My Way News.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is