Þriðjudagur 16.10.2007 - 12:00 - Ummæli ()

Paris lætur gott af sér leiða

ParisParis Hilton segir fangelsisvist sína í júní síðastliðnum hafa hjálpað sér að þroskast, hún hafi fundið fyrir tómleikatilfinningu og áttað sig á því að hún vilji láta gott af sér leiða.

Hún lýsir líferni sínu fyrir fangelsisvistina sem draumalífi sem snerist um að skemmta sér og fara í partý. Nú segist hún hins vegar ætla að nota frægð sína til góðverka.

Í nóvember heldur Paris til Rúanda í þeim tilgangi að beina augum heimsins að landinu. Hún viðurkennir að hún sé hrædd og hafi heyrt að landið sé hættulegur staður.

Í för með djammdrottningunni (fyrrverandi) verða góðgerðarsamtökin Playing for Good og mun hópurinn heimsækja skóla og heilsugæslustöðvar á ferð sinni um landið. Að sjálfsögðu mun ferðalagið vera fest á filmu, enda segist Hilton elska að hafa hlutina vel skráða og segist vonast til þess að geta gert mynd úr upptökunum. Með því vill hún sýna öðrum hvernig hversdagurinn gangi fyrir sig hjá henni og hversu hart hún leggi að sér, enda vill hún meina að mikill misskilningur sé í gangi varðandi hana og hennar líf.


Sjá hér.

Mynd: NordicPhoto/GettyImages

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is