Amitelo býður best í GSM á Íslandi
Tilboð sem bárust í síðari áfanga GSM-farsímaþjónustu á landinu voru opnuð í morgun, en þrjú tilboð bárust. Tvö tilboðanna eru frá innlendum fyrirtækjum og eitt frá svissneska fyrirtækinu Amitelo. Öll tilboðin voru undir kostnaðaráætlun fjarskiptasjóðs, sem var 732 milljónir króna.
Tilboðin voru eftirfarandi: Síminn hf. 655 milljónir króna – 12 mánaða verktími.
Og fjarskipti ehf., 487 milljónir króna – 22 mánaða verktími. Amitelo 468 milljónir króna –12 mánaða verktími.
Síðari áfangi GSM-farsímaþjónustunnar snýst um að koma upp og reka farsímaþjónustu á völdum svæðum á landinu, einkum á Vestfjörðum og Norðuausturlandi en einnig víða á Snæfellsnesi, Austfjörðum og Suðurstrandarvegi. Útboðið gerði ráð fyrir að verkinu yrði lokið á 22 mánuðum en stig voru gefin fyrir að ljúka verkinu fyrr. Tilboðin verða metin út frá heildarhagkvæmni, en ekki einvörðungu fjárhæð tilboðs eins og fram kemur í útboðsgögnun.
Ríkiskaup önnuðust framkvæmd útboðsins fyrir hönd fjarskiptasjóðs, en farið verður yfir tilboðin næstu daga og vikur og gert er ráð fyrir að gengið verði frá samningum fyrir lok mánaðarins.
Fyrirtækin þrjú voru valin í lokað útboð að undangengnu forvali sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu í mars á þessu ári.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is


