Laugardagur 20.10.2007 - 13:57 - Ummæli ()

Forstjóri REI vill hita upp Alaska

orgalaska.jpgFjallað var um möguleika í jarðvarmavinnslu í Alaska í fréttum Alaska Public Radio í gær. Fjallað er um heimsókn forseta Íslands þangað í vikunni og rætt við Guðmund Þóroddsson, forstjóra REI, um möguleikana og Grím Björnsson, jarðeðlisfræðing hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

„Þegar ég lít til baka verð ég alltaf jafn hissa á því hversu hlutfallslega lítill jarðhitaorkuiðnaðurinn er, ef miðað er við möguleika hans,“ segir Grímur. „Mjög líklega hefur jarðhitaiðnaðurinn, vísindamennirnir og allir sem að honum koma, ekki náð að flytja fagnaðarboðskapinn til stjórnmálamannanna, þeirra sem taka ákvarðanirnar. Ég held að þetta sé að breytast núna vegna þess að umfangið og þekkingin í greininni eru komin á það stig, að áhættan er ekki jafn mikil og hún var.“

Í frétt sem Libby Casey, hjá útvarpsstöðunni KUAC í Fairbanks í Alaska, sendi frá Reykjavík er rætt við Grím og Guðmund Þóroddson, forstjóra REI. (Reyndar er í fréttinni missagt að Reykjavík Energy Invest hafi opnað höfuðstöðvar sínar í Los Angeles nýlega, það var Iceland America Energy, sem REI stendur þó að í samstarfi við ENEX og bandaríska aðila).

Rakin er útrásarhugmyndin um REI og fjárfestingar í erlendum jarðhitaverkefnum og skýrt frá Alaskaheimsókn þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í vikunni. Forsetinn tók á miðvikudaginn við viðurkenningu fyrir forystu um samstarf og sjálfbæra þróun á Norðurslóðum. Þessi umhverfisverðlaun Norðurslóða voru veitt við hátíðlega athöfn í Anchorage í Alaska að viðstöddum fjölmörgum þátttakendum á alþjóðlegri ráðstefnu um orkumál á Norðurslóðum og forystumönnum Alaskaríkis.

Haft er eftir Guðmundi Þóroddsyni í fréttinni, að vonir standi til að fjárfest verði í jarðhitaverkefnum á Alaska, sérstaklega í nágrenni Anchorage. Hann segir að þessi stærsta borg Alaska geti orðið fullkomið dæmi um samnýtta jarðhitavinnslu á rafmagni og heitu vatni til húshitunar. „Það er góður markaður fyrir hita í Alaska“ segir Guðmundur.

Í fréttinni er lauslega getið deilnanna í kringum REI og sagt að meðan verið sé að finna útúr þeim smáatriðum, þá þræði REI jarðhitasvæði heimsins til að segja söguna um þýðingu jarðhitans í efnahagsþróun Íslands.


Sjá fréttina og útvarpspistilinn hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is