Mánudagur 22.10.2007 - 09:37 - Ummæli ()

73,3% tvítugra kvenna en 49,2% karla lauk stúdentsprófi

image_cropped49.jpg Skólaárið 2005-2006 lauk 73,3% af fjölda tvítugra kvenna í landinu stúdentsprófi en 49,2% af fjölda tvítugra karla. Sama ár voru konur tveir þriðju þeirra sem luku prófi á háskólastigi en karlar tæpur þriðjungur. Aldrei hafa fleiri nemendur útskrifast úr háskólum og framhaldsskólum landsins en skólaárið 2006.

Alls útskrifuðust 3.362 nemendur með 3.388 próf á háskólastigi og var fjölgunin 15,6% frá árinu áður. 2.441 luku fyrstu háskólagráðu, – 12% fleiri en árið áður. 411 luku meistaraprófi og fjölgaði um 40,8% frá árinu áður. 15 nemendur, 7 karlar og 8 konur, luku doktorsprófi en árið áður voru nýir doktorar við íslenska háskóla 14 talsins.

4.832 nemendur luku framhaldsskólaprófi og fjölgaði um 0,7% frá. Konur voru 52,5% brautskráðra. 2.843 luku starfsnámi á framhaldsskólastigi en 2.452 stúdentsprófi og voru stúdentar 29 fleiri en skólaárið 2004-2005. Körlum meðal nýstúdenta fjölgaði um 38 en konum fækkaði um 9 frá fyrra ári. Meðal þeirra sem luku starfsnámi í framhaldsskóla voru karlar hins vegar fleiri en konur eða 1.621 á móti 1.222. Sveinsprófi luku 482 karlar en 127 konur.

—-

Sjá vef Hagstofunnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is