Mánudagur 22.10.2007 - 09:35 - Ummæli ()

Skotinn til bana í London – annar særður

street.jpgMaður var skotinn til bana og annar særður alvarlega í skotárás í Suður-London í morgun.

Vitni sagði lögreglu að nokkrum skotum hefði verið skotið á hinni fjölförnu götu Streatham High Road um hálf sexleytið í morgun.

Tveir eða fleiri bílar sáust yfirgefa staðinn stuttu eftir skotárásina, að sögn talsmanns Metropolitan-lögreglunnar.

Maður á þrítugsaldri var fluttur á sjúkrahús með skotsár, en lést skömmu eftir komuna á sjúkrahúsið.
Að sögn lögreglu hafa kennsl verið borin á manninn og fjölskylda hans látin vita.
Annar maður liggur þungt haldinn af skotsárum á sjúkrahúsi.

Götunni hefur verið lokað af í báðar áttir meðan lögregla rannsakar morðstaðinn. Rannsókninni er stjórnað af Operation Trident, sem rannsakar skotbardaga í hverfum svartra í London.

Frá þessu segir í The Guardian.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is