Sjö innbrot og fjórar líkamsárásir að meðaltali á dag
Að meðaltali voru framin sjö innbrot, fjórar líkamsárásir og 11 eignarspjöll á degi hverjum í septembermánuði samkvæmt afbrotatölfræði embættis Ríkislögreglustjóra.
Septembermánuður 2007 var býsna venjulegur mánuður í heimi afbrotanna, ef marka má tölfræðina. Þó fjölgaði innbrotum um eitt á dag frá sama mánuði á síðasta ári og fíkniefnamálum fækkaði um rúmlega eitt á dag. Alls skráði embætti Ríkislögreglstjórans 347 eignaspjöll, 219 innbrot og 139 líkamsárásir/meiðingar í bækur sínar í septembermánuði en í sama mánuði í fyrra voru eignaspjöllin 351 talsins, innbrotin 186 og meiðingarnar og árásirnar 121.
Þó fjölgar umferðarlagabrotum um 1.000 frá september á síðasta ári. Meginskýringin á því virðist vera sú að tvær rafrænar hraðamyndavélar voru settar upp í Borgarfirði en það er lögreglan á Snæfellsnesi sem fylgist með vélunum og skráir brotin. Munurinn sést á því að lögreglan á Snæfellsnesi hafði afskipti af 33 umferðarlagabrotum í september 2006 en í síðasta mánuði – eftir að myndavélarnar voru komnar á forræði embættisins – eru brotin 1.301 talsins. Sú fjölgun dekkar nærri því alla fjölgun umferðarlagabrota milli september 2006 og 2007 en alls voru 4390 umferðarlagabrot skráð fyrra árið en 5.355 hið síðara.
—-
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is