Miðvikudagur 24.10.2007 - 17:01 - Ummæli ()

Metsölulisti bóka í síðustu viku

met.JPGÞótt nýja Biblíuþýðingin kæmi ekki í verslanir fyrr en 19. október rauk hún í efsta sæti á lista yfir mest seldu bækurnar í verslunum Eymyndsson og Máls og menningar vikuna 17. til 23. október.

Biblían er seld í fimm mismunandi kápugerðum en samkvæmt heimildum Eyjunnar er sú í rauðu kápunni söluhæst og kemur það fólki í bókabransanum talsvert á óvart. Fyrirfram var búist við að sú með svörtu kápunni seldist mest og hún er í öðru sæti. Hvíta útgáfan selst minnst enn sem komið er. Kannski tekur sala á henni við sér þegar farið verður að ferma með vorinu.

Tvær íslenskar sakamálasögur eru á topp tíu listanum; Dauði trúðsins eftir Árna Þórarinsson í 6. sæti og Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur í 10. sæti.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is