Laugardagur 27.10.2007 - 10:08 - Ummæli ()

Ung börn fá allt of mikið af vítamínum

vitamins.jpgBörn á aldrinum fjögurra til sex ára eiga á hættu að fá lifrarskaða vegna þess að í þau er
dælt allt of miklu af vítamínum. Þetta kemur fram á politiken.dk, þar sem segir ennfremur að danskir foreldrar geri þetta af góðmennsku en viti bara ekki betur.

Í rauninni fær næstum helmingur barna á þessum aldri meira A-vítamín en hámarksskammt, en Evrópubandalagið hefur fundið út hvenær skammtar eru orðnir skaðlegir.

Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem vísindakonunnar Camillu Spagner, sem hún gerði í samvinnu við Næringarfræðistofnun í Danmörku. Hún segir að þegar of mikið A-vítamín safnast upp í líkamanum geti það valdið allskyns sjúkdómum.
„Foreldrar gefa börnum sínum of mikið af vítamínum,“ segir Spagner, og taka ekki mið af því
að mikið af vítamínum eru þegar í fæðunni, og ofskammtar geta verið stóhættulegir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is