Mánudagur 29.10.2007 - 20:48 - Ummæli ()

Enn einn lélegur þorskárgangur – ofveiði í Barentshafi en stofninn stækkar

73238020.jpg„Sá þorskstofn sem best er á sig kominn í dag – er þorskstofninn í Barentshafi – en þar hefur verið veitt  – nánast „stjórnlaust“ s.l. 10 ár og stofninn sjaldan verið sterkari. Veitt hefur verið 2-3 sinnum það sem ráðgjafar ráðlögðu í Baretnshafi – en stofninn hefur stækkað við þessa meintu „ofveiði“ þar.“

Þetta segir Kristinn Pétursson, fyrrverandi fiskverkandi á  Bakkafirði og kunnur áhugamaður um fiskveiðistjórnunina í nýrri færslu á blogginu sínu, í framhaldi af fyrstu fréttum af fyrstu niðurstöðum um seiðatalningu Hafrannsóknarstofnunar.

Kristinn fer hörðum orðum um ráðgjöf Hafró og segir: „Fá og horuð seiði – og lélegur ungþorskur – er það ekki skiljanlegt miðað við  þessa sí-endurteknu  tilraunastarfsemi til að þvinga náttúruna til hlýðni við ónýtt reiknilíkan – þar sem ekki er talið skipta máli hvort fæða er til handa þorskinum sem á að geyma og láta stofninn stækka…..?? Hvernig á matarlaus þorskstofn að stækka?“ spyr Kristinn.

Meira hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is