Geir, Ingibjörg Sólrún og Kristján ekki með fasta viðtalstíma
Þrír ráðherrar í nýrri ríkisstjórn eru ekki með fasta viðtalstíma. Hér er um að ræða Ingibjörgu Sólrúnu, utanríkisráðherra og formann Samfylkingar, og Geir Haarde, forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, ásamt samgönguráðherra Kristjáni Möller.
Frá þessu segir í Fréttablaðinu í dag.
Þar segir einnig að almenningur panti ekki oft samal við forsætisráðherra, en það geri hins vegar fjöldinn allur af hagsmunaaðilum og fólki úr stjórnkerfinu.
Ingibjörg mun veita viðtöl „eftir þörfum“ segir aðstoðarmaður hennar, en Kristján er sagður duglegur að veita viðtöl þó þau séu ekki á föstum tímum og stundum hefur hann varið heilum degi í að ræða við fólk. Þá hringir hann gjarnan í fólk á landsbyggðinni til að spara þeim sporin.
Aðrir ráðherrar veita viðtöl fyrir hádegi á miðvikudögum, en menn muna ekki aðra eins ásókn og er nú í heilbrigðisráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson, sem hefur svarað allt að 300 erindum í eigin persónu og stytt sinn biðlista umtalsvert.
Þá er mikil ásókn í menntamálaráðherra, segir í Fréttablaðinu. og viðtalsbeiðnir við hann margar á dag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is