Þúsundir spila EVE online í Laugardalshöll um helgina
Þúsundir manna eru væntanlegir til landsins um helgina til að spila tövuleikinn EVE Online. Helgin verður uppskeruhátíð fjölspilunarleiksins, en hátíðin er að verða jafn stór og Airwaves. Búist er við tíu þúsund gestum segir í Fréttablaðinu, en hátíðin sem kallast Fanfest verður haldin í Laugardalshöll.
Áður hefur hátíðin verið haldin í Loftkastalanum og Hótel Nordica en þau húsnæði rúma ekki gestina lengur og Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segist ekki muna jafn fjölmenna ráðstefnu hér á landi.
Fjölmargir erlendir gestir eru væntanlegir, flestir koma frá Bretlandi, en þeir eru þarna á meðal sem koma yfir hálfan hnöttinn, frá Ástralíu og Nýja Sjálandi.
Hilmar segir fólk koma hingað til að hitta þá sem það hefur verið að spila við, þá sem gera leikinn og spjalla um heimsmálin.
Þetta er fyrst og fremst fögnuður yfir leiknum sjálfum,“ segir Hilmar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is