Þriðjudagur 30.10.2007 - 07:33 - Ummæli ()

Myglusveppur heilsuvandamál í gömlum húsum

Þar sem raki er mikill í gömlum húsum verður oft vart við myglusveppi sem geta verið afar skaðlegir heilsunni. Þeir geta valdið ofnæmi og ýmsum sýkingum,myglusv.jpg segir í Fréttablaðinu,

Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir líffræðingur segist fá fjórar til fimm símhringingar í viku þar sem fólk kvartar undan myglusvepp.

Hún segir ekki mikið vitað hvað áhrif sveppurinn hafi á heilsu, en hann geti örugglega haft áhrfi á öndunarfæri og þeir sem eru með ofnæmi finna fyrir einkennum eins og nefrennsli, hósta, hnerra og rauð augu.

Myglusveppurinn þrífst á röku svæði, oft í gluggum og þvottavélum, stundum sést slikja í sápuhólfum og svo getur hann verið á gólfum og veggjum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is