Miðvikudagur 31.10.2007 - 08:46 - Ummæli ()

Af litlum neista… Lítill drengur með eldspýtur átti upptök að skógareldum

eldur3.jpgLítill drengur og eldspýtustokkur getur verið hættuleg samsetning. Það hafa að minnsta kosti íbúar í Kaliforníu upplifað svo um munar, en samkvæmt nýjustu fréttum hófust eldarnir miklu, sem urðu 14 manns að bana, með litlum dreng og eldspýtustokk.
Í yfirlýsingu frá lögreglu segir að drengurinn, sem ekki er nafngreindur, hafi viðurkennt að hafa leikið sér með eld og óvart komið af stað skógareldum í kringum Los Angeles.

Eldurinn eyðilagði 21 heimili og 15.378 hektara lands. Meðan á eldunum stóð voru fimm manns teknir til yfirheyrslu, en enginn þeirra reyndist tengjast upptökunum.

Frá þessu segir í Berlingske Tidende.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is