Miðvikudagur 07.11.2007 - 08:05 - Ummæli ()

Listaverkamarkaður blómstrar á Íslandi sem aldrei fyrr

list.jpgÍslenski upppboðs -markaðurinn á listaverkum blómstrar sem aldrei fyrr og velta ársins í ár er hærri það sem af er þessu ári en allt árið í fyrra.

Þetta kemur fram í Markaði Fréttablaðsins í dag.

Tvö uppboð eru eftir á þessu ári hjá Arnason & Andonov og Gallerí Fold. Fyrrnefndir sérhæfa sig í frímerkjum og mynt en eru þó einnig með listaverk.

Jóhann Ágúst Hansen, listaverkasali í Gallerí Fold, heldur utan um íslensku listaverkavísitöluna, en hún byggir á gagnagrunni yfir seld verk á íslenskum uppboðum síðan árið 1956.

Hann segir verðþróun hér stjórnast af því sem gerist erlendis. þegar verð hækkar þar gerist það líka hér heima.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is