Miðvikudagur 07.11.2007 - 07:53 - Ummæli ()

Lögreglan á Selfossi: Kynferðisbrotamálum fjölgar sífellt

selfoss.jpgLögreglan á Selfossi er með fjölda kynferðismála á borðinu hjá sér sem ekki hefur tekist að sinna.

Það sem af er árinu hafa 38 mál verið til meðferðar hjá lögreglunni á Selfossi og að sögn lögreglustjóra eru þau af ýmsum toga, kynferðisleg misbeiting bæði á börnum og fullorðnu fólki. Tíu þessara mála eru utan Árnessýslu.

Frá þessu segir í Fréttablaðinu en þar er haft eftir lögreglustjóranum á Selfossi, Ólafi Helga Kjartanssyni, að ekki sé um að kenna að langan tíma taki að rannsaka þessi mál heldur sé það fjölgun málanna sem valdi áhyggjum.

Það bendi til að eitthvað mikið sé að í samfélaginu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is