Margir geðsjúkir tifandi tímasprengjur – fá ekki hjálp
Skeytingarleysi í garð geðsjúkra birtist í ýmsum myndum og ein þeirra er að þeir eru bornir út af heimilum sínum. Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir í viðtali í Fréttablaðinu í dag að þessum grimmilegu aðgerðum sé beitt á geðsjúka.
Hann segir þó óumdeilt að geðsjúkir valdi oft vandamálum í nábýli við aðra, en segir vandamálið skýrt í sínum huga.
Það hafi einfaldlega ekki tekist að framfylgja heildarstefnu í málefnum geðsjúkra og samvinnu félags- og heilbrigðisráðuneytis sé ábótavant. Mun skipulegar þurfi að vinna að geðheilbrigðismálum.
Sigurður Helgi Guðjonsson, formaður húseigendafélagsins, segir að oft berist inn á borð hjá sér kvartanir vegna geðsjúks fólks og segir að stundum sé beinlínis um hættu að ræða.
Sveinn tekur undir það og segir þá veikustu í hópi geðsjúkra tifandi tímasprengjur. Þeir séu hættulegir því þeim hafi ekki verið sinnt vegna veikinda sinna. Ef þeir fengju hinsvegar stuðning til sjálfshjálpar væri hægt að gera kraftaverk.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is