Sunnudagur 11.11.2007 - 13:34 - Ummæli ()

Bang! Fljúgandi kýr lenti á bíl hjóna í skemmtiferð

flying_cow.jpgBandarísku hjónin Charles og Linda Everson áttu sér einkis ills von þegar þau voru í sínum prívat bíl á leið til hótels nærri Manson í Washington-fylki. Þar voru þau að halda upp á eins árs brúðkaupsafmæli sitt.

Þar sem þau óku sem leið lá í átt að hótelinu kom skyndilega kýr fljúgandi af himnum ofan og lenti á bíl þeirra.

Hjónunum var skiljanlega illa brugðið og voru flutt á sjúkrahús, en útskrifuð stuttu seinna. Kýrin Michelle var hinsvegar aflífuð.


flying-cow.jpg

Bíll þeirra hjóna er illa farinn eins og sést á myndinni, en kýrin fljúgandi á meðfylgjandi mynd er ekki Michelle.

Arnold Bake, yfirmaður slökkviliðsins í Chelan-sýslu, sagði að engu hefði mátt muna að hjónin létu lífið. Kýrin hafði fallið niður um 200 fet ofan af klettasyllu.

Frá þessu segir á Sky.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is