Evrópusambandið varar við sænskri klamidíu
„Það er afar mikilvægt fyrir heilbrigði fólks að smit sænsku klamidíunnar finnist í Evrópu,“ eru skilaboðin frá stofnun innan ESB sem sér um forvarnir og fylgist með þróun sjúkdóma.
Á síðasta ári uppgötvaðist í Svíþjóð ný gerð af klamidíu. Sú nýja hefur sömu einkenni og hin upprunalega, en vandamálið er að sú nýja greinist ekki með aðferðum sem dugðu til að finna hina.
Þegar þessi uppgötvun fréttist til Evrópu olli hún strax verulegum áhyggjum, en hin nýja klamidía reynist enn sem komið er nánast eingöngu bundin við Svíþjóð.
Hún hefur því fengið nafnið „swedish Chlamydia trachomatis“, swCT, (sænsk klamydia).
Síðan hafa bæði sænskir og evrópskir vísindamenn reynt að kortleggja swCT-bakteríuna. Það kemur í ljós að hún er útbreidd í Svíþjóð en virðist enn ekki ná mikið út fyrir landamærin.
Nú könnun leiðir í ljós að fjórðungur klamidíusmitaðra í Malmö eru með nýju gerð sjúkdómsins meðan aðeins einn í hópi 3.000 klamidíusmitaðara í Kaupmannahöfn greindist með nýju útgáfuna.
ESB-stofnunin um forvarnir varar nú við að nýja tegundin af klamidíu geti auðveldlega borist um Evrópu og hvetur aðildarlöndin til að nota nýjar greiningaraðferir til að finna swCT-tilfellin. Sjúkdómurinn ógni Evrópu og mikilvægt sé að hefta útbreiðsluna.
Í Svíþjóð hafa flest nýju tilfellin fundist í Dölnum, en þar reyndust 65% smitaðra með nýju útgáfuna.
Frá þessu segir í aftonbladed.se
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is