Húsnæðismál öryrkja: Brýnt að hafa náið samstarf við íbúana segir félagsmálaráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, segir hugmyndir Sjálfsbjargar um breytt fyrirkomulag búsetuúrræða í takt við nýja hugmyndafræði, en það sé áhyggjuefni að slíkarákvarðanir séu teknar meðan langir biðlistar eru eftir búsetu meðal fatlaðra.
Í Fréttablaðinu í dag segir Jóhanna að ástæður biðlistanna sé hversu fjármagn í framkvæmdasjóð fatlaðra hafi verið skert undanfarin ár.
Hún segir að sér hafi ekki enn verið kynntar hugmyndir Sjálfsbjargar, en hún telur mikilvægt að eiga fund með félagsmálayfirvöldum og forystumönnum Sjálfsbjargar. Enn fremur segir hún að málið þarfnist frekari yfirferðar og skoðunar og þess vegna sé brýnt að hafa náið samráð við íbúana.
Ragnar Gunnar Þórhallsson, formaður Sjálfsbjargar, segir fasteignaskatta hafa hækkað mikið og Reykjavíkurborg hafi neitað að koma með mótframlag þrátt fyrir að slíkt hafi verið gert í Hafnarfiði með starfsemi svipaða Sjálfsbjargar. Hann segir samtökin hafa komið sér hjá skuldum með því að segja upp starfsmönnum, skera niður þjónustu, hækka leigu og selja eignir, en slíkt gangi þó ekki til lengdar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is