Miðvikudagur 14.11.2007 - 08:22 - Ummæli ()

Sumarbústaðaeigendur við Skorradalsvatn fúlir út í Orkuveituna

skorradalsvatn23441.jpgSumarbústaðaeigendur við Skorradalsvatn eru ómyrkir í máli þegar kemur að Orkuveitu Reykjavíkur og segja eigur sínar í hættu á hverju ári þegar Orkuveitan hækki yfirborð vatnsins.

Þeir segja þetta valda gríðarlegum náttúruspjöllum og eingöngu tímaspursmál hvenær tjón verði á bátaskýlum við vatnið. Deildarstjóri Orkuveitunnar segir þó fleira koma til.

Valgeir Hallvarðsson, sumarbústaðaeigandi við Skorradalsvatn og formaður félags sumarbústaðaeigenda í Vatnsendahlíð, segir í Fréttablaðinu í dag að engar viðvaranir berist sumarbústaðaeigendum þegar vatnið hækkar þannig að algengt sé að bátar fari á kaf og jafnvel skemmist. Hann segir sömuleiðis mikið jarðrask verða á bökkum vatnsins þannig að eigendur sumarbústaða þurfi að moka malarhlössum í vatnið á vorin til að bæta fjöruna.

Deildarstjóri hjá Orkuveitu Reykjvaíkur, Kristinn Gíslason, segir hinsvegar íbúa við vatnið eiga að vita að í kringum 15. september ár hvert sé yfirborð vatnsins hækkað.

„Það var gerður samningur við landeigendur við vatnið um hvernig miðluninni skyldi háttað svo það ætti ekki að koma neinum á óvart þegar við hækkum vatnsstöðuna,“ segir Kristinn. Þá segir hann mikið sig á landinu sem auki landbrot og eins hafi landeigendur mokað þúsundum rúmmetra af jarðvegi úr vatninu. Það hafi auðvitað líka áhrif.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is