Nýtt frumvarp um meðferð sakamála: Reglur um upplýsingagjöf rýmkaðar
Í frumvarpi til nýrra laga um meðferð sakamála, sem lagt hefur verið fram á Alþingi, er meðal annars lagt til að hver sem er geti fengið aðgang að ákæru þremur sólarhringum eftir að hún hefur verið birt ákærða, „nema sérstakir almanna- eða einkahagsmunir standi því í vegi,“ eins og segir í frumvarpinu.
Einnig á hver sem er rétt á að fá afrit af skriflegri greinargerð ákærðs manns, en frumvarpið gerir ráð fyrir að sakaðir menn leggi í auknum mæli fram skriflegar greinargerðir sér til varnar.
Í greinargerð frumvarpsins segir að í því sé leitast við að bæta úr skorti á lagareglum um aðgang almennings og fjölmiðla að gögnum sem varða rannsókn eða saksókn í opinberu máli, en slíkur aðgangur er nú undanþeginn upplýsingalögum. Ekki er í frumvarpinu lagt til að leidd veðri í lög ákvæði um almennan aðgang að göngum hjá lögreglu og ákæruvaldi meðan mál er til meðferðar hjá stjórnvölrum. „Erfitt er að setja almennar reglur þess efnis á því stigi máls, þ.e. áður en tekin hefur verið ákvörðun um saksókn í málinu, m.a. til þess að rannsókn þess verði ekki stefnt í hættu eða gengið verði gegn viðurkenndum lagasjónarmiðum um persónuvernd,“ segir í greinargerðinni.
Þar er ennfremur tekið fram að ekki megi gagnálykta þann veg af ákvæði um aðgang að ákæru þremur sólarhringum eftir birtingu að engar upplýsingar skuli veittar um mál áður en ákæra hefur verið birt, heldur sé það „á valdi lögreglu og ákæruvalds að ákveða það hverju sinni, m.a. með tilliti til fyrirmæla um þagnarskyldu.“ Er saksóknara veitt heimild til að setja reglur um skyldu lögreglu til að veita upplýsingar um rannsókn mála.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is