Gerði 15 ára dóttur sinni barn og giftist henni síðan
Indverskur faðir, Afazuddin Ali, gerði 15 ára dóttur sína ófríska og til að bíta höfuðið af skömminni hefur hann nú gifst henni.
Hann er líka giftur gömlu eiginkonunni, móður eiginkonu sinnar númer tvö. Reiðir nágrannar gengu af göflunum og réðust á manninn, en eiginkonan varði hann með kjafti og klóm. „Við ætluðum að mölbrjóta á honum hausinn, við vorum svo reið,“ er haft eftir einum nágrannanum. Lögreglan náði á elleftu stundu að bjarga Ali undan íbúum þorpsins.
Ali sagði fyrstu eiginkonu sinni að giftingin væri vilji Allah. Íbúar þorpsins, þar sem fjölskyldan býr, hugleiddi að kæra hann fyrir sifjaspell, en það er ekki hægt þar sem engin lög eru til um sifjaspell á þessum slóðum.
Málið endaði þó fyrir rétti þar sem eiginkona Alis studdi hann dyggilega. „Hann er mjög trúaður og myndi aldrei ljúga í nafni Allah,“ sagði eiginkonan. „Ég samþykkti brúðkaupið þegar ég skildi að það er vilji Allah. Fjölskyldan er ekki komin heim aftur frá réttarhöldunum því hún hræðist að dómstóll götunnar taki málin í sínar hendur með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Sjá frétt á TV2.dk
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is